Hvernig virka æfingakerfi?

  1. Superset

Superset er æfing þar sem æfing sem er merkt A1 eða B1/C1/D1 er tekinn og enginn hvíld er tekinn og fært er sig yfir í næstu æfingu sem er merkt A2 eða B2/C2/D2 og svo framvegis. Superset er þá sem dæmi:

Æfing A1 reps 10 strax í A2 æfing og tekinn x reps síðan er hvíld tekinn og setinn eru kannski 3 svo það eru 2 æfingar teknar án hvíldar og síðan er hvílt fyrir næstu umferð.

  1. Dropset

Dropset er þannig að æfing er tekinn án hvíldar í öllum tilvikum er það ein æfing svo 1 set myndi hljóða svona “20 endurtekningar þyngdin létt eða sama þyngd tekinn og gert er 10-15 endurtekningar og síðan 5-10 endurtekningar og þyngdin létt í hvert skipi eða endurtekningar. Oftast eru þetta 2-3 “drop” en geta verið fleiri.

  1. Giant Set

Hér má nefna það sama og með superset nema hér er æfingin í stærri pörtum. Þú framkvæmir A1 síðan strax í A2, A3, A4 og svo framvegis. Þó það standi B eða C eða D þá er það bara skiptingin á hlutunum í hverri æfingu. A er alltaf það sem þú skiptir á milli með lágmarks hvíld, B er annar partur og skiptiru á milli æfinga í B.

  1. AMRAP (as many rounds as possible)/ AMRAP (as many reps as possible)

Þessi segir sig nokkuð sjálf en hún þarf samt sem áður skýringu. Íslenska heitið við þetta er eins margar umferðir og þú getur(as many rounds as possible). Oftast er þessi á tíma. As many reps as possible er eins margar endurtekningar og þú getur á tíma eða í tilteknu æfingunni og þú átt ekkert meira inni.

  1. EMOM (every minute on the minute)

Þú gerir X margar endurtekningar í þessari 1 mínútu. Ef þú klárar endurtekningar ef það eru 20 sek eftir af mínútúnni þá hvíliru í 20 sek og leið og næsta mínútu byrjar þá þarftu að byrja aftur. Ef þú nærð ekki að klára endurtekningarnar á þessari mínútu þá þarftu að byrja aftur upp á nýtt á næstu mínútu frá Endurtekningu 1. Það má segja að þú hafir bara 1 mín til að klára 1 set og ef þú nærð að klára setið hratt þá hefuru meiri tíma til að hvíla áður en næsta set byrjar.