Hvað eru macros?

Macros eru einfaldlega næringargildi sem gefa ákveðið magn orkuefna. Orkuefnin fáum við úr því sem við borðum dags daglega. Hvert orkuefni gefur mismunandi mikið magn af orku, eða kaloríum, á hvert gramm. Aðal orkuefnin eru prótein, kolvetni og fita.

Með því að fylgjast með næringargildum þá getur þú séð hvaðan þú færð orkuna þína og í hvað hún nýtist. Að notast við macros(næringagildi) er góð leið til þess að fylgjast með orkuinntöku og passa að þú sért að fá næga og góða næringu.

Næringarinnihald sem sýnir magn kolvetna, fitu og próteins í skammti

Í stað þess að hugsa um að ákveðin fæða sé óholl eða holl, horfðu þá frekar á næringarinnihaldið! Allur matur hefur ákveðið innihald, hvort sem hann sé með hátt hlutfall af fitu, kolvetnum eða próteinum. Það sem skiptir málið er magnið sem þú ætlar að innbyrða því líkaminn brýtur alla fæðu niður á sama hátt, alveg sama hvort það sé hamborgari eða stórt kjúklingasalat.

Að nota macros snýst um að borða ákveðið magn af próteini, fitu og kolvetnum yfir daginn í samræmi við markmiðin þín, hvort sem að það sé að léttast, þyngjast, bæta vöðvamassa eða annað. Það skiptir máli að fylgja ákveðnu magni af orkuefnunum og því er ekki nóg að fylgjast bara með kaloríufjölda yfir daginn. Við byggjum ekki upp mikinn vöðvamassa með því að borða nánast aðeins kolvetni og fitu en ekkert prótein í mataræðinu.

Prótein hjálpar okkur að byggja upp og viðhalda vöðvamassa sem og halda okkur mettuðum lengur. Kolvetni gefa okkur m.a. trefjar og eru góður orkugjafi. Fita hjálpar okkur að stjórna hormónum í líkamanum.

Hér sérðu hvaðan úr fæðunni þú færð kolvetni, prótein og fitu