Þegar kemur að mataræði og að fylgja næringargildum er oft talið að það sé nóg að fylgjast með kaloríuinntöku, próteinum, kolvetnum og fitu. Það er að sjálfsögðu mikilvægt en þó er annar þáttur sem skiptir miklu máli þegar kemur að heilbrigðu mataræði til þess að ná árangri, trefjar!
Trefjar eru tegund af kolvetnum en nýtast ekki sem orka því við náum ekki að brjóta þær niður. Þær eru þó mjög mikilvægar fyrir heilbrigða og meltingu. Við inntöku fara þær um meltingarveginn og hægja á frásogi fæðunnar sem við innbyrðum. Þetta getur leitt til aukinnar blóðsykursstjórnunar og seddutilfinningu.
Ef þú ert ekki að fylgjast með því sem þú borðar og borðar mikið af unnum mat þá er líklegt að þú sért ekki að ná lágsmarkstrefjamagni fyrir daginn.
Trefjar finnast í m.a. heilkornavörum eins og dökku brauði og pasta. Rannsóknir hafa sýnt að neysla heilkornavara tengist minni líkum á sykursýki II og hjarta- og æðasjúkdómum. Þú færð einnig trefjar úr ávöxtum, grænmeti og baunum.


