Ef þú vilt komast í betra form og breyta lífstílnum

Hæ, Ég heiti

Gunnar Stefán Pétursson

Ég er ÍAK einka- og styrktarþjálfari og sérhæfi mig í að hjálpa fólki með líkamsbeitingu og betrumbæta lífsstílinn.

 

Margfaldur keppandi í vaxtarrækt og er þ.á.m. íslandsmeistari 2019. Margra ára reynsla af bæði einkaþjálfun og fjarþjálfun.

 

Ég býð uppá:

Heyrðu hvað fyrri viðskiptavinir hafa að segja:

Friðný Fjóla

Ég hef loksins samband við Gunnar seint 2017 og þá var ekki aftur snúið. Hann kenndi mér að elska sjálfa mig, og að þú þarft að borða til að "performa"! Ég fann strax mun á mér bæði andlega og líkamlega fyrstu vikurnar, ég var farin að geta æft almennilega og það var ekki aftur snúið. Auðvitað komu og gera enn dagar sem þú ert ekki 100% í öllu og þá er Gunnar alltaf til staðar til að peppa þig áfram, hann hefur sýnt mér að það er í lagi að gera mistök og hversu auðvelt það er að komast aftur á beina veginn.

Sigdór Sölvi

Ég hef verið í þjálfun hjá Gunnari í 4 mánuði, á þeim tíma er ég búinn að ná rosalega miklum árangri, bætt á mig vöðvum og styrkst helling á sama tíma. Ég hef æft í nokkur ár en ekki náð svona miklum árangri fyrr en ég byrjaði í þjálfun hjá Gunnari. Æfingarnar eru bæði skemmtilegar og erfiðar, hann er alltaf tilbúin að hjálpa og aðstoða mann þegar manni vantar hjálp. Mæli mikið með honum!

Arna Ingimars

Ég var í þjálfun hjá Gunnari í tvö ár og náði góðum árangri. Hann kenndi mér nýjar leiðir varðandi næringu - svo ég gat borðað, notið þess og samt náð markmiðum mínum sem ég hafði lengi reynt að ná án árangurs og eftirfylgnin var góð. Ef eitthvað fór úrskeiðis hjá mér þá hafði hann alltaf pepp talk eða ráð til að koma mér aftur á brautina. Gunnar er þjálfari með allt á hreinu og hann kennir manni að móta sér heilbrigðan lífsstíl.

Hafðu samband í dag og taktu skref í átt að breyttum lífstíl!