Print Options:

Hollur pizzabotn (2 x 14“ botn)

Yields1 Serving

Hollur pizzabotn
 2 ¼ volgt vatn
 1 tsp hunang
 2 tsp þurrger
 2 tbsp olífuolía
 4 ½ gróft heilhveiti
 2 tbsp sesamfræ
 1 tbsp sólkjarnafræ
 1 tbsp graskersfræ
 1 tsp maldon salt
Pizzasósa (má líka nota barbecuesósu)
 1 Hunts tómatpure í 305 g dósum
 2 hvítlauksrif marin í hvítlaukspressu
 ½ tsp hunang
 1 tsp oregano
 1 tsp basil
 ¼ tsp cayennepipar
 ¼ tsp salt
Hvítlauksolía
 2 góð olía
 3 hvítlauksrif marin í hvítlaukspressu
 ½ tsp hvítlauksduft
 2 tsp fínt söxuð steinselja (eða 1 tsk. þurrkuð)
 ¼ tsp salt
1

Ofn: 200°C blástur eða 225°C án blásturs.

Kveikið á ofninum og setjið tvær bökunarplötur í ofninn. Önnur efst og hin neðst. Ef þið eruð ekki með blástursofn bakið þið eina pizzu í einu en setjið báðar plöturnar í ofninn strax.

Mælið vatn, hunang og ger í skál og blandið lítillega saman með sleif. Látið standa í 10 mínútur á hlýjum stað.

Bætið olíunni í skálina eftir 10 mínúturnar og mælið svo hveiti, fræ og salt saman við. Hrærið vel saman með sleif og hnoðið svo vandlega á borði.

Notið eins lítið hveiti til að hnoða og hægt er, deigið á að vera lint og mjúkt.

Látið deigið lyfta sér í skál með röku stykki ofan á í 30 mínútur. Hnoðið örlítið upp aftur, skiptið í 2 hluta og fletjið út í 2 kringlótta 14“ stóra pizzabotna.

Færið botnana á bökunarpappír og setjið sósu, ost og álegg á. Færið pizzurnar á pappírnum á heitar bökunarplöturnar og bakið í 10-14 mínútur hvora fyrir sig. Ef þið bakið bara eina í einu er hin heita platan höfð kyrr í ofninum þangað til sú fyrri er tekin út og þá er sú seinni sett á heitu plötuna og bökuð.

Verði þér að góðu :-)