*Þetta er í IOS/Iphone
Farið er yfir hvernig einn dagur er settur upp.
Taktu eftir að gildin eru sett upp eftir venjulegum degi hjá Gunnari þjálfara á ákveðnum tímapunkti hjá honum.
Prótein 350g
Kolvetni 500g
Fita 75g
Trefjar 25g+
Taktu eftir þetta er gert hægt til að sýna þér hvernig þetta er.
Númer 1: Próteingjafi er settur inn fyrst.
Númer 2: Kolvetnigjafi er næst settur inn.
Númer 3: fitugjafi er settur inn síðast.
Númer 4: athugað hvort vanti upp á trefjar, prótein, kolvetni, fitu eða athugað hvort sé of lítið eða of mikið og lagaðu daginn hjá þér.
Númer 5: Alltaf er best að ákveða fyrirfram daginn og sitja upp matmikinn mat sem er trefjaríkur og fer ekki ílla í þig. Þetta þarf ekki að vera einhæft en svona er sirka venjulegur dagur.
**Athugaðu þarna er Gunnar kominn með stóran gagnagrunn af upplýsingum fyrir sjálfan sig svo ef þú ert að sitja inn hluti í fyrsta skipi þá geturu nýtt þér eitthvað af því sem þú sérð í myndbandinu og leitað.
***Græna merkið er einfaldlega verified og notar hann það fyrir eldaðar kjúklingabringur og sætar kartöflur. Allt er vigtað og geturu sérð hvernig hann breytir hlutunum í per 100g eða per 1g.
****Ekki er sýnt í þessu myndbandi hvernig er búið til uppskrift eða notað strikamerki eða búið til fæðu “Create food” Einungis er sýnt hvernig dagurinn er uppsettur. Og sýnt aðal atriðin í uppsetningu.
Ef þau virka ekki þá geturu gert “create a new food” sem sést í næsta myndbandi.
Athugaðu að alltaf skal skoða næringargildin og annað sem kemur inn eftir strikjamerkjaskönnun, oft á tíðum hefur einhver jafnvel ekki sett inn rétt gildi eftir að varan sé nýkominn á markað og einhver “óvart” bara ekki sett inn gildin en bara kcal eða sett inn hærri tölur í næringuna.
Best er að sitja inn í byrjun 100g en þú getur sett inn hvað sem er svosem 1 box eða 1 cup eða annað.
Næsta skref er að þú ferð að sitja inn kcal á vörunni, prótein, kolvetni, fitu og trefjarnar. Einnig er margt annað í boði ef maturinn sem þú ert með býður upp á það svo því meiri upplýsingar því betra fyrir þig.

